31. maí
Tvö skemmtiferðaskip í höfnAlmennt - - Lestrar 113
Tvö skemmtiferðaskip voru í höfn á Húsavík í dag og mikið mannlíf við höfnina sem og í bænum.
Spitsbergen kom til hafnar á áttunda tímanum og lagðist að Norðurgarðinum og um há-degisbil kom Ocean Diamond að Þvergarðinum.
Það fyrrnefnda mun láta aftur úr höfn í kvöld en Ocean Diamond á morgun.
Þá má geta þessa að flutningaskip liggur við Bökugarðinn en það kom með trjádrumba fyrir kísilver PCC á Bakka.
Spitsbergen við Norðurgarðinn og Ocean Diamond við Þvergarðinn.