Tveir nýir stjórnarmenn kosnir á ađalfundi Markađsstofu Norđurlands

Tveir nýir stjórnarmenn voru kjörnir í stjórn Markađsstofu Norđurlands á ađalfundi sem haldinn var á Hótel Kea fimmtudaginn 3. maí.

Stjórn Markađsstofu Norđurlands.
Stjórn Markađsstofu Norđurlands.

Tveir nýir stjórnarmenn voru kjörnir í stjórn Markađsstofu Norđurlands á ađalfundi sem haldinn var á Hótel Kea fimmtudaginn 3. maí.

Dagskrá fundarins var samkvćmt skipulagsskrá og hér neđst má finna tengil á glćrusýningu um verkefni ársins 2017.

Kosiđ var um tvćr stöđur ađalmanna, annars vegar á Norđurlandi vestra og hinsvegar á Norđurlandi eystra. Sitthvor frambjóđandinn gaf kost á sér, og töldu ţeir Viggó Jónsson og Baldvin Esra Einarsson ţví sjálfkjörnir. Viggó rekur Drangeyjarferđir í Skagafirđi og er framkvćmdastjóri skíđasvćđisins í Tindastól. Baldvin Esra er framkvćmdastjóri ferđaskrifstofunnar Saga Travel á Akureyri.

Kosiđ er um hvert sćti í stjórninni til tveggja ára í senn og gáfu ţćr Sigríđur María Róbertsdóttir frá Sigló Hótel og Sigríđur Káradóttir frá Gestastofu Sútarans ekki kost á sér áfram.

Auk ţess var kosiđ um varamenn í stjórn, en ţau Ţórdís Bjarnadóttir frá Höldi og Tómas Árdal frá Arctic Hotels gáfu áfram kost á sér til ţeirra hlutverka. Ţar sem engin mótframbođ bárust töldust ţau sömuleiđis sjálfkjörin.

Stjórnina skipa nú: Unnur Valborg Hilmarsdóttir frá Sólgarđi Apartments, sem jafnframt er formađur, Arngrímur Arnarson frá Norđursiglingu, Edda Hrund Guđmundsdóttir frá Hótel Laxá, Viggó Jónsson frá Drangeyjarferđum og Baldvin Esra Einarsson frá Saga Travel. Varamenn eru Ţórdís Bjarnadóttir frá Höldi og Tómas Árdal frá Arctic Hotels.


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744