Tíu Völsungar lögðu topplið Þróttar úr Vogum

Völsung­ur vann góðan heima­sig­ur á Þrótti úr Vog­um á Vodafonevellinum á Húsavík í dag.í toppslag 2. deild­ar karla í fót­bolta á Húsa­vík í dag.

Tíu Völsungar lögðu topplið Þróttar úr Vogum
Íþróttir - - Lestrar 348

Arnar Pálmi Kristjánsson.
Arnar Pálmi Kristjánsson.
Völsung­ur vann góðan heima­sig­ur á Þrótti úr Vog­um á Vodafonevellinum á Húsavík í dag.
 
Um toppslag 2. deild­ar karla var að ræða og eftir leikinn munar aðeins tveim­ur stig­um á liðunum þegar þrjár um­ferðir eru eft­ir af deild­inni.
 
Völsungar byrjuðu vel þegar Arnar Pálmi Kristjáns­son kom heimamönnum yfir strax á átt­undu mín­útu en skömmu síðar fékk Santiago Feuillassier rautt spjald.
 
Völsungar þar með einum færri og þrátt fyrir þunga sókn mest allan leikinn tókst Þrótti ekki að jafna.
 
Völsungar sækja Magna heim nk. laugardag en staðan í 2. deildinni er svona:
 
  1. Þrótt­ur V. 38
  2. Völsung­ur 36
  3. KV 34
  4. Njarðvík 32
  5. Magni 30
  6. ÍR 28
  7. KF 28
  8. Reyn­ir S. 26
  9. Hauk­ar 22
  10. Leikn­ir F. 18
  11. Fjarðabyggð 11
  12. Kári 9

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744