Tillagan um Móra hlaut þriðju verðlaunAlmennt - - Lestrar 679
Eins og kom fram á 640.is í vikunni hlaut Jón Grétar Ólafsson arkitekt fyrstu verðlaun í hugmyndasam-keppni um tillögu að hönnuðu verki, eða listaverki, í nágrenni við jarðvarmastöð Landsvirkjunar að Þeistareykjum.
Það er gaman að segja frá því að Húsvíkingarnir Kristján Breiðfjörð Svavarsson landslagsarkitekt, búsettur á Svalbarða, og Röðull Reyr Kárason myndlistarmaður ásamt Snorra Þór Tryggvasyni arkitekt hrepptu 3. sætið í hugmyndasamkeppninni.
Tillaga þeirra er á myndinni hér að neðan og nefnist Móri með tilvísan í Þeistareykjamóra og Mórahelli.
Hugmyndin að baki Móra var að skapa bæði áhugavert listaverk sem fangar forvitni og einnig áhugaverðan áfangastað fyrir þá sem eiga leið um Þeistareykjarsvæðið.
"Móri sækir innblástur sinn í náttúru- og manngert umhverfi sem finna má á svæðinu, krafta náttúrunnar og endurspeglar að einhverju leyti þau mannvirki sem eru á svæðinu.
Hugmyndin hefur tilvísun í nánasta umhverfi, s.s. Borholuhús, kraftinn sem er í iðrun jarðar og ofan jarðar, útþenslu efnis, hellisop, tímann, hveralitina, borholuhljóðdeyfir, útlínur fjalla, þögnina og einsemdina. Móra er ætlað að auka upplifun þeirra sem eiga leið um, óháð erindi þeirra - ferðamenn, gestir Landsvirkjunar, fræðamenn, göngufólk, útivistarfólk enda er Móri staðsettur við þjónustuveg sem haldið er opnum árið um kring.
Móri er áningarstaður þar sem upplýsingum, náttúrulega staðhætti, t.d. Jarðfræði, vistfræði, jarðhræringar er miðlað sem og upplýsingum um virkjun og framkvæmd hennar, jarðvarma og beislun hans".






























































640.is á Facebook