Tilkynning frá Lögreglunni á Húsavík

Lögreglan á Húsavík óskar að koma eftirfarandi tilkynningu á framfæri við íbúa Þórshafnar og nágrennis og allra annarra sem telja sig geta veitt

Tilkynning frá Lögreglunni á Húsavík
Fréttatilkynning - - Lestrar 939

Lögreglan á Húsavík óskar að koma eftirfarandi tilkynningu á framfæri við íbúa Þórshafnar og nágrennis og allra annarra sem telja sig geta veitt upplýsingar.

Nú nýverið voru unnar miklar skemmdir á bifreið lögreglu-varðstjóra á Þórshöfn, með því að rispa bílinn allan og m.a. rispa á hann orð sem greinilega eru til þess ætluð að vega að honum og starfi hans sem lögreglumanns í samfélaginu Langanesbyggð.

Bifreiðin var skemmd þar sem hún stóð utan við lögreglustöðina á Þórshöfn.


Lögreglan á Húsavík biðlar til þeirra sem búa yfir upplýsingum um þetta mál og vita hver eða hverjir voru að verki, að hringja í síma 444-2850 og koma þeim upplýsingum á framfæri.

Með fyrirfram þökk f.h. lögreglunnar á Húsavík,

Aðalsteinn Júlíusson lögreglumaður.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744