Til íbúa Raufarhafnar.Aðsent efni - - Lestrar 378
Til íbúa Raufarhafnar og nágrennis
Formleg opnun heilsugæslu
Þann 13. maí 2008, kl. 16:00 mun heilbrigðisráðherra opna formleg nýendurbyggða heilsugæslustöð á Raufarhöfn. Opið hús frá 16:00 til 18:00
Skakkhorn
Á sama tíma verður opin ný aðstaða fyrir sjúkrabíl og áhaldahús Norðurþings fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér hana.
Kynningarfundur á skýrslu starfshóps um möguleg tækifæri til atvinnusköpunar á Raufarhöfn
Seinna um kvöldið eða kl. 19:45 býður Norðurþing íbúum Raufarhafnar til fundar í félagsheimilinu Hnitbjörgum á Raufarhöfn. Þar verður kynning á skýrslu starfshóps um möguleg tækifæri til atvinnusköpunar á Raufarhöfn sem var unnin fyrr á þessu ári. Til fundarins eru m.a. boðaðir, þingmenn kjördæmisins og ráðherra byggðamála. Einnig er von á fulltrúum frá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga og Markþingi.
Dagskrá fundar
19:45 Setning – Jón Helgi Björnsson
19:55 Kynning starfshóps – Elísabet
20:25 Fulltrúi Norðurþings – Guðbjartur Ellert Jónsson
20:45 Kaffihlé
21:00 – 22:00 Umræður
Með góðum kveðjum fyrir hönd Norðurþings
Elísabet Gunnarsdóttir, s. 4646125