Þriðji sigur Völsunga í röðÍþróttir - - Lestrar 879
Völsungar fengu ÍR í heimsókn í 2. deildinni í dag og leikið var á grasvellinum.
Það byrjaði ekki vel fyrir Völsunga því Sigvaldi Þór Jónasson þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla eftir nokkurra mínútna leik.
Freyþór Hrafn Harðarson kom inn á í hans stað og Bergur Jónmundsson færði sig í stöðu Sigvalda í vinstri bakverðinum. Freyþór tók stöðu Bergs í hjarta varnarinnar við hliðina á Caelon Fox.
Völsungar komust yfir eftir ríflega hálftíma leik með sjálfsmarki gestanna og þannig stóðu tölur í hálfleik.
Guðmundur Óli Steingrímsson tvöfaldaði forystuna þegar um tíu mínútur voru til leiksloka með marki úr vítaspyrnu. Brotið hafði verið á Ásgeiri Kristjánssyni innan teigs og dómarinn benti á punktinn. Guðmundur skoraði örugglega úr spyrnunni og þar við sat, góður sigur í höfn.
Völsungur hefur unnið þrjá síðustu leiki sína í deildinni eftir að hafa tapað fyrir Kára í 1. umferðinni.
Völsungur er því með níu stig eftir fjórar umferðir líkt og Selfoss en KFG og Leiknir F eigast við á morgun og með sigri kemst KFG einnig í níu stig.





























































640.is á Facebook