Þótti skemmtilegast í landafræði

Þegar 100 ára fullveldi Íslands var fagnað í Borgarhólsskóla 1. desember sl. var uppskera Þemadaga skólans til sýnis.

Þótti skemmtilegast í landafræði
Almennt - - Lestrar 721

Friðrik Glúmsson Vallakoti.
Friðrik Glúmsson Vallakoti.

Þegar 100 ára fullveldi Íslands var fagnað í Borgarhólsskóla 1. desember sl. var uppskera Þemadaga skólans til sýnis.

Þar var margt að sjá eins og áður hefur komið fram á 640.is.  Nemendur í sjötta og sjöunda bekk unnu til að mynda með stefnur og strauma hvers áratugar. 

Eitt af verkefnum þeirra var að setja upp ljósmyndasýningu þar sem einn íbúi á Húsavík eða nærsveitum var fulltrúi hvers árs frá 1918 til dagsins í dag. Ýmist mynduðu krakkarnir viðkomandi eða fengu myndir að láni.

Meðal þeirra sem á sýningunni voru er Friðrik Glúmsson frá Vallakoti í Reykjadal sem er fæddur árið 1919. 

Lagðar voru þrjár spurningar fyrir nokkar þá sem á sýningunni eru en þær voru eftirfarandi:

Hvar varstu í skóla, hvað var skemmtilegast í skólanum og hvaða áhugamál hafðir þú.

Fyrstu spurningunni svaraði Friðrik, eða Filli eins og hann er jafnan kallaður, að hann hafi verið í farskóla og skemmtilegast þótti honum í landafræði. Aðaláhugamál hans var fótbolti og spilaði hann með HSÞ, td. á Þingvöllum 1957.  

Friðrik Glúmsson

Þrjár stúlkur úr Borgarhólsskóla heimsóttu Friðrik á Skógarbrekku þar sem hann hafði verið í hvíldarinnlögn en var á leið heim í Vallakot. Hann gaf sér þó tíma til að ræða við stúlkurnar en þær heita Hjördís Inga Garðarsdóttir, Karólína Ösp Henningsdóttir og Erla Rut Þorgrímsdóttir. Með þeim í för var kennari þeirra Sóley Sigurðardóttir.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744