Þekktu rauðu ljósinFréttatilkynning - - Lestrar 674
Soroptimistaklúbbur Húsavíkur og nágrennis efnir til ljósagöngu mánudaginn 2. desember kl 17.00 frá Húsavíkurkirkju.
Tilefnið er árlegt 16 daga átak Soroptimistahreyfingarinnar gegn ofbeldi. Átakið nefnist Þekktu rauðu ljósin.
Gangan hefst við Húsavíkurkirkju. Lagt verður af stað frá kirkjunni kl.17.00 og gengið upp í Skrúðgarð í miðbæ Húsavíkur, þar sem kakó og piparkökur verða í boði í og við Kvíabekk.
Þar mun Silja Rún Reynisdóttir, lögreglukona, flytja erindi sem tengist málefni átaksins sem er ad vinna gegn ofbeldi og þekkja birtingarmyndir þess. Að þessu sinni er kastljósinu beint að birtingarmyndum stafræns ofbeldis og hvernig verjast má því.
Hvetjum við öll sem láta sig þetta málefni varða að mæta í Ljósagönguna. Einkennislitur átaksins er appelsínugulur.
Skannaðu QR kóðann
,,Soroptimistar á Húsavík og í nágrenni vilja einnig þakka öllum þeim sem studdu þetta átak með því að kaupa blóm. Ágóði af þeirri sölu mun renna til stofnana sem styðja við þolendur ofbeldis.
Hjálplegar vefsíður:
Neyðarlínan – 112 aðstoðar í neyð, segðu frá, ofbeldi er alls konar
Samtök um kvennaathvarf – Kvennaathvarfið
Bjarmahlíð miðstöð fyrir þolendur ofbeldis – Ráðgjöf – Stuðningur – Fræðsla (bjarmahlid.is)
aflidak.is – Samtök fyrir þolendur kynferðislegs ofbeldis og/eða heimilisofbeldis.





























































640.is á Facebook