Tap í fyrsta heimaleiknum

Völsungur lék í dag sinn fyrsta heimaleik í 2. deild karla þetta tímabilið.

Tap í fyrsta heimaleiknum
Íþróttir - - Lestrar 216

Fyrsta mark gestanna í uppsiglingu.
Fyrsta mark gestanna í uppsiglingu.

Völsungur lék í dag sinn fyrsta heimaleik í 2. deild karla þetta tímabilið.

Mótherjarnir voru ÍR og náðu þeir að hirða öll stigin þrjú sem voru í boði á Vodafone-vellinum á Húsavík.

Hart var barist allt til enda en ÍR komst yfir þegar tæplega korter var liðið af síðari hálfleik. Þá skoraði Arian Ari Morina eftir hornspyrnu.

Breiðhyltingarnir tvöfölduðu svo forskot sitt þegar um tuttugu mínútur voru til leiksloka en þá skoraði Jörgen Pettersen, aftur eftir hornspyrnu.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Á 77 mínútu minnkaði Sæþór Olgeirsson muninn fyrir heimamenn og þrátt fyrir mikla baráttu á lokamínútunum var 1-2 tap staðreynd.

Hér fyrir neðan má sjá þá nýju leikmenn Völsungs sem byrjuðu leikinn.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Kristófer Leví Sigtryggson lánsmaður frá Fylki stóð á milli stanganna.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Jamie Agujetas Otero er hér fremstur í flokki.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Adolf Mtasingwa Bitegeko lék sinn fyrsta leik með Völsungi í dag.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Kifah Moussa Mourad sækir að marki gestanna.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Santiago Feuillassier Abalo sýndi lipra takta.

Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

 

 

 

 

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744