Tap fyrir toppliði KA

Í kvöld tóku Völsungar á móti grönnum sínum í KA í Úrvalsdeild kvenna í blaki.


Tap fyrir toppliði KA
Íþróttir - - Lestrar 137

Í kvöld tóku Völsungar á móti grönnum sínum í KA í Úrvalsdeild kvenna í blaki.

Gestirnir voru ekki í miklum vandræðum heimastúlkur og unnu nokkuð auðveldlega 16-25, 16-25 og 19-25.

Það var aðeins í fyrstu hrinu sem heimastúlkur stóðu aðeins í gestunum og leiddu hrinuna uppí 13-13.

Þá fór Tea Andric í uppgjöf og KA skoraði fimm stig í röð og við það var eins Völsungar misstu sjálfstraustið og lítið gekk eftir það og KA kláraði örugglega.

Í næstu tveimur hrinum var það sama upp á teningnum KA lönduðu sigri nokkuð örugglega þó svo að Völsungar næðu aðeins að rétta úr kútnum í lok þriðju hrinu. 

Stigahæstar í Liði Völsungs voru Ky Hunt með 10 stig og Heiðdís Edda með 8

Í liði KA fór Tea Andric fyrir sínu liði með 17 stig og Paula Del Olmo Gomez með 12 stig

Eftir leiki kvöldsins trónir KA eitt á toppnum með 33 stig eftir 12 leiki, 3 stigum á undan Aftureldingu sem á leik til góða. 

Völsungar eru í 6. og næst neðsta sæti með 8 stig, einnig eftir 13 leiki.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ky Hunt var stigahæst Völsunga með 10 stig.

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Ljósmynd Hafþór - 640.is

Tea Andric var stigahæst KA stúlkna með 17 stig.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744