Tap fyrir HamriÍþróttir - - Lestrar 80
Völsungur/Efling fékk Hamar úr Hveragerði í heimsókn í PCC höllina á Húsavík gærkveldi og sigruðu gestirnir hið unga lið Þingeyinga örugglega 3-0.
Hamar var með frumkvæðið allan leikinn, en liðið vann fyrstu tvær hrinurnar 25:16 og þriðju hrinuna 25:10.
Stigahæstur heimamanna var Marcel Pospiech með átta stig og næstir honum komu Aron Bjarki Kristjánsson og Trey Weinmeier báðir með fimm stig.
Hjá gestunum var Tomek Leik stigahæstur með 11 stig og næstur honum Rafal Berwald með níu stig.
Hamarsmenn eru á toppi Unbrokendeildar karla með 28 stig, sjö stigum á undan Aftureldingu, sem á leik til góða. Völsungur/Efling er í sjöunda sæti af átta liðum með tvö stig.