Tap fyrir eyfirðingum í skákinni

Í dag fór fram héraðskeppni í skák milli Þingeyinga og Eyfirðinga í Stórutjarnaskóla.

Tap fyrir eyfirðingum í skákinni
Íþróttir - - Lestrar 228

Skákilið þingeyinga. Lj. 641.is
Skákilið þingeyinga. Lj. 641.is

Í dag fór fram héraðskeppni í skák milli Þingeyinga og Eyfirðinga í Stórutjarnaskóla.

Var þetta fyrsta formlega héraðskeppnin í flokki 16 ára og yngri. Bæði lið mættu með 12 keppendur og var þeim skipt í tvo hópa, reyndari keppendur og hóp með minni keppnisreynslu.

 

Allir tefldu við alla í hópi andstæðinganna, alls 6 skákir og voru tímamörkin 10 mín á mann. Eyfirðingar unnu nokkuð öruggan sigur í hóp reyndari keppenda og fengu þeir 28 vinninga geng 8 vinningum Þingeyinga.

Mun jafnari keppni var í flokki keppenda með minni keppnisreynslu og réðust úrslitin ekki fyrr en í síðustu umferð. Eyfirðingar höfðu þó betur og fengu 19 vinninga en Þingeyingar 17.

Sjá nánar á heimasíðu Skákfélagsins Goðans-Máta


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744