Svavar H. Viðarsson ráðinn persónuverndarfulltrúi HSNAlmennt - - Lestrar 259
Svavar H. Viðarsson hefur verið ráðinn persónuverndarfulltrúi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) og mun sjá um málefni tengd persónuverndarstefnu HSN.
Í tilkynningu segir að Svavar sé menntaður á sviði stjórnunar og hefur yfir áratugsreynslu í stjórnendaráðgjöf og þjálfun.
Hann stýrir verkefnum tengdum persónuverndarmálum hjá mörgum fyrirtækjum og stofnunum, m.a. Eimskipum, Norðurþingi, Hafnarfjarðarbæ, Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, Securitas o.fl.
Samkvæmt nýrri persónuverndarlöggjöf skal persónuverndarfulltrúi vera til staðar hjá öllum stofnunum, ráðuneytum og sveitarfélögum og ákveðnum fyrirtækjum. Hann hafi það hlutverk að fylgjast með því að fyrirtæki og stofnanir fari að persónuverndarlögum.





























































640.is á Facebook