Svanhildarstofa opnuð á HÆLINU á Kristnesi

Sunnudaginn 20. nóvember verður Svanhildarstofa á HÆLINU setri um sögu berklanna opnuð formlega en Hælið er staðsett á Kristnesi í Eyjafjarðarsveit.

Svanhildarstofa opnuð á HÆLINU á Kristnesi
Aðsent efni - - Lestrar 159

Sunnudaginn 20. nóvember verður Svanhildarstofa á HÆLINU setri um sögu berklanna opnuð formlega en Hælið er staðsett á Kristnesi í Eyjafjarðarsveit.

Svanhildur Ólafsdóttir Hjartar var móðir Ólafs Ragnars Grímssonar fyrrverandi forseta og hún glímdi við berkla megnið af sinni ævi. Við minnumst hennar í Svanhildarstofu þar sem komið hefur verið upplýsingum og sýningargripum, sem tengjast sögu hennar, á lifandi og áhrifaríkan hátt.

Hr. Ólafur Ragnar flytur ávarp og les upp úr nýútkominni bók sinni; Bréfin hennar mömmu. Hann mun lesa kl 14 og aftur kl 15.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Frítt er inn á sýninguna um Hvíta dauða.

Aðsend ljósmynd

Bréfin í bláu töskunni

Í hálfa öld lágu bréf í blárri tösku sem enginn vissi af. Það var óvænt ánægja og sterk upplifun fyrir Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands, að uppgötva þau nýverið. Þegar hann yfirgaf Bessastaði 2016 fór hann með töskuna ásamt 200 öðrum kössum beint á Þjóðskjalasafnið til varðveislu. Við undirbúning Svanhildarstofu hér á HÆLINU var Ólafur spurður hvort ekki væru til bréf frá móður hans er hún dvaldist langdvölum á berklahælum, bæði á Vífilsstöðum og Kristnesi. Hann taldi það ekki vera, hafði aldrei heyrt af því en datt þó í hug að mögulega gæti eitthvað leynst í bláu töskunni. Það reyndist rétt vera. Tugir bréfa sem lýsa ást, söknuði, vonbrigðum, æðruleysi og eilífri von og gefa magnaða innsýn í líf berklasjúklinga en einnig tíðarandann um miðja síðustu öld.

 Aðsend ljósmynd

Svanhildur með einkasoninn Ólaf Ragnar í fanginu.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744