Sumargleði í verbúðunum

Á morgun, sumardaginn fyrsta, ætla Helga Björg og Arnhildur Pálma að galopna verbúðirnar enn og aftur og bjóða áhugasömum í heimsókn.

Sumargleði í verbúðunum
Almennt - - Lestrar 365

Listakonurnar Anna Bjé og Björk Halldórs.
Listakonurnar Anna Bjé og Björk Halldórs.

Á morgun, sumardaginn fyrsta, ætla Helga Björg og Arnhildur Pálma að galopna verbúðirnar enn og aftur og bjóða áhugasömum í heimsókn.

Þar verður margt á döfinni, sem dæmi flóamarkaður þar sem hægt er að gera svo góð kaup að þér dettur ekki einu sinni í hug að prútta, Anna Bjé verður með listaverkin sín til sýnis og sölu og Björk Halldórs verður í fyrsta sinn með sýningu á sínum verkum,

Þórir Georg mætir svo kl. 17:00 með Axel Flóvent bróðir sinn og vini sína í hljómsveitinni Ghost Mice og bjóða þeir uppá notalega tónleika.

Þá verður Speakers Corner vígt og orðið er laust....

Sem sagt, eins og þær stöllur Helga Björg og Arnihildur segja, "lífið er ljúft í verbúðunum og sumarið að koma". 

Þá verður eins og segir í frétt hér að neðan listnemar frá Sviss með sýningu kl. 16:41 og fjársjóðsleit frá kl. 13-16.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744