17. mar
Strætó ekur alla páskadaganaFréttatilkynning - - Lestrar 327
Strætó mun aka alla páskadagana. Yfir hátíðisdagana verður ekið samkvæmt hefðbundinni sunnudags áætlun.
Í fréttatilkynningu segir að á skírdag, fimmtudaginn 24. mars, verði ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.
Föstudaginn langa, 25. mars, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Laugardaginn 26. mars verður ekið samkvæmt hefðbundinni laugardagsáætlun.
Á páskadag, sunnudaginn 27. mars, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun. Annan í páskum, mánudaginn 28. mars, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.
Allar nánari upplýsingar má fá á strætó.is