Stórsigur Völsunga í dagÍþróttir - - Lestrar 273
Völsungar létu tapið gegn Val í bikarnum ekki slá sig út af laginu í dag þegar þeir endurheimtu annað sætið í 2. deildinni í dag.
Reyni frá Sandgerði kom í heimsókn á Vodafonevöllinn og eftir rúmlega tuttugu mínútna leik fengu heimamenn vítaspyrnu.
Þá braut Birkir Freyr Sigurðsson á Sæþóri Olgeirssyni innan vítateigs.
Birkir Freyr fékk að líta rauða spjaldið en Sæþór steig á punktinn og skoraði örugglega stöngin inn.
Um mínútu síðar brutu Sandgerðingarnir aftur á Sæþór en nú rétt utan vítateigs.
Sæþór tók aukaspyrnuna sjálfur, skaut yfir varnarvegginn og í bláhornið, staðan orðin 2-0. Sæþór búinn að skora 18 mörk í deildinni og lang markahæstur.
Þannig stóðu leikar í hálfleik og allt þar til rúmlega korter var til leiksloka þegar Jakob Héðinn Róbertsson skoraði og kom Völsungum í 3-0. Hans fyrsta deildarmark fyrir Völsung en hann hafði komið inn á fyrir Sæþór frænda sinn á´60 mínútu leiksins og var þegar búinn að eiga skot í slá.
Skömmu síðar minnkaði Magnús Þórir Matthíasson muninn fyrir Reynismenn en Arnar Pálmi Kristjánsson negldi síðasta naglann í kistuna með flottu skallamarki undir lok leiksin.
Bjarki fyrirliði fagnar með Arnari Pálma sem skoraði fjórða markið.
Völsungur í öðru sæti með 30 stig, fimm á eftir Þrótti en staðan í 2. deild eftir sextán umferðir er svona:
Þróttur V. 35
Völsungur 30
KV 28
Njarðvík 26
KF 25
Magni 24
ÍR 22
Reynir S. 20
Haukar 19
Leiknir F. 15
Kári 9
Fjarðabyggð 5