Stórsigur Völsunga á Hamri

Það var markaregn á PCC vellinum á Húsavík í dag þegar Völsungur fékk Hamar frá Hveragerði í heimsókn.

Stórsigur Völsunga á Hamri
Íþróttir - - Lestrar 140

Berta María í leik með Völsungi fyrr í sumar.
Berta María í leik með Völsungi fyrr í sumar.

Það var markaregn á PCC vellinum á Húsavík í dag þegar Völsungur fékk Hamar frá Hveragerði í heimsókn.

Harpa Ásgeirsdóttir kom Völsungum á bragðið snemma í leiknum og áður en yfir lauk hafði boltinn hafnað 6 sinnum í marki gestanna.

Hildur Anna Brynjarsdóttir jók forskotið í 2-0 áður Hamarskonur urðu fyrir því óláni að skora í eigið net. 3-0 í leikhlé.

Gestirnir minnkuðu muninn strax í upphafi síðari hálfleiks en Krista Eik Harðardóttir svaraði um hæl og Völsungur kominn í 4-1.

Berta María Björnsdóttir bætti við fimmta markinu áður en Krista Eik gerði sjötta og síðasta markið á lokamínútum leiksins.

Völsungur er í 3. sæti 2. deildar með 17 stig en Hamar í næst neðsta sæti með 1 stig. 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744