Stóra stundin að renna upp á BakkaAlmennt - - Lestrar 663
Það er sannanlega stór stund fram undan hjá PCC BakkiSilicon nú í kvöld kl 20:00.
Allt er til reiðu að hefja upphitun Birtu, annars tveggja ljósbogaofna Kísilversins á Bakka.
Í tilkynnimngu segir að undanfarið hafi komið upp einstök atriði við prófanir sem hafa valdið töfum á gangsetningu, en tekist hefur að finna lausnir á þeim vandamálum og allt er tilbúið núna.
Gangsetningar ferlið er í stuttu máli þannig að fóðringar ofnsins eru bakaðar með því að auka hægt og rólega afl ofnanna. Eftir rúma fimm daga verður skammtað fyrsta hráefninu inn á ofninn samfara frekari aflaukningu.
Eftir rúma viku hefur verið náð fullu afli, 24 MW á ofninn og þá verður einnig tappað út fyrsta málminum okkar. Allt afgas frá ofninum verður flutt í gegnum reykhreinsivirki frá byrjun ferlisins.
PCC BakkkiSilocon hvetur alla til að hafa samband við okkur vakni spurningar út af einhverju sem varða rekstur PCC BakkiSilicon.
Netfang, info@pcc.is og sími 464 0060. Vegna mála sem leysa þarf úr strax verður hægt nú í upphafi rekstrar að hringja í síma verksmiðjuvaktar 464 0077.