Stelpurnar á góðu skriði - þriðji sigurinn í röð

Völsungsstelpurnar eru á góðu skriði í 2. deildinni en þær unnu sinn þriðja leik í röð í gær.

Stelpurnar á góðu skriði - þriðji sigurinn í röð
Íþróttir - - Lestrar 110

Emelía Ósk Kruger skoraði annað mark Völsungs.
Emelía Ósk Kruger skoraði annað mark Völsungs.

Völsungsstelpurnar eru á góðu skriði í 2. deildinni en þær unnu sinn þriðja leik í röð í gær.

Þá fengu þær KH í heimsókn á PCC völlinn og höfðu sigur, 2-0.

Þær Emily Marie Murphy og Emelía Ósk Kruger skoruðu bæði mörkin í fyrri hálfleik.

Staða Völsung í deildinni er góð, eru með 28 stig eftir 15 umferðir og aðeins tveimur stigum á eftir toppliði ÍR. 

Pakkinn er mjög þéttur og spennandi barátta framundan en liðið í áttunda sæti er með 24 stig.

Strákarnir eiga leik í dag, fá Hauka frá Hafnarfirði i heimsókn á PCC völlinn.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744