Stefán Óli Hallgrímsson valinn í úrvalslið knattspyrnuskóla Bobby CharltonÍþróttir - - Lestrar 632
Ungur Aðaldælingur, Stefán Óli Hallgrímsson frá Grímshúsum, var valinn í úrvalslið knattspyrnuskóla Bobby Charlton í Manchester á Englandi í síðustu viku, en þar æfði hann knattspyrnu í um viku tíma ásamt tæplega 100 öðrum jafnöldrum sínum, strákum og stelpum, víðsvegar að úr heiminum.
Stefán Óli spilar sem markvörður og var hann verðlaunaður frá skólanum sérstaklega með orðunum: „Most likely to be a professional goalkeeper“, eða líklegastur til að verða atvinnumaður í knattspyrnu sem markvörður. Um 40 aðrir jafnaldrar Stefáns frá Íslandi æfðu líka við knattspyrnuskólann á sama tíma.
En það voru ekki bara þrotlausar knattspyrnuæfingar við skólann því ýmislegt var gert til skemmtunar. Farið var í skoðunarferðir á leikvelli í nágrenninu og í skemmtiferðir í Manchesterborg.
Stefán Óli sem er 14 ára gamall, hefur lengi æft sem markvörður og hefur hann spilað með yngri flokkum Völsungs á Húsavík í nokkur ár.
Búast má við að hann eigi eftir að láta til sín taka á milli stanganna í framtíðinni. (641.is)