Stærsta skip sem lagst hefur að bryggju á HúsavíkAlmennt - - Lestrar 511
Þegar bæjarbúar voru að tygja sig til vinnu í morgun lagðist skemmtiferða-skipið Maasdam við Bökugarðinn á Húsavík. Maasdam er stærsta skip sem lagst hefur við bryggju á Húsavík.
Að sögn Stefáns hafnarvarðar eru 1183 farþegar með skipinu og hafa þeir sett svip sinn á bæjarlífið í dag.
Og víða í Þingeyjarsýslum má segja þeir eru út um allt í skoðunarferðum. Margir stigu upp í langferða-bíla og ætluðu skoða perlur þingeyjarsýslna í dag meðan aðrir fóru um borð í hvalaskoðunar-báta og sigldu út á flóann í hvala-skoðun. Enn aðrir voru um kyrrt í bænum og skoða það sem bærinn hefur upp á bjóða sem er margt eins og t.a.m. Reðursafnið, Hvalasafnið og Safnahús Þingeyinga.
Maasdam er í eigu útgerðarinnar Holland America Line og var hleypt af stokkunum árið 1993. Það mælist 55.451 tonn að stærð og lengdin er 219,45 metrar og breiddin 33,52 metrar. Sulzer aðalvél sér um að knýja það áfram og nærð það rúmlega 20 sjómílna hraða. Áhafnarmeðlimir þess eru 549 talsins.
Stefán hafnarvörður segir þetta síðasta skemmtiferðaskipið sem hefur viðkomu á Húsavík í sumar og lætur það úr höfn kl. 17:00.

Margir farþegar Maasdam fóru í hvalaskoðun í dag.

Systurnar Unnur Mjöll og Inga Björk Hafliðadætur virtu Maasdam fyrir sér í morgunblíðunni.

































































640.is á Facebook