Sparisjóđur Suđur-Ţingeyinga styrkir björgunarsveitir í Ţingeyjarsýslum um fjórar milljónir krónaAlmennt - - Lestrar 170
Ađalfundur Sparisjóđs Suđur-Ţingeyinga var haldinn 28. apríl s.l. í Skjólbrekku í Mývatnssveit.
Rekstur sparisjóđsins gekk vel á síđasta ári, hagnađur af starfseminni var rúmar 76 milljónir króna eftir skatta. Um síđustu áramót voru heildareignir sparisjóđsins um 12,3 milljarđar króna og hafa aukist um 1,3 milljarđa á milli ára.
Innlán voru á sama tíma um 11 milljarđar og jukust ţau um 1,1 milljarđ á milli ára. Eigiđ fé sparisjóđsins var 1,1milljarđur í árslok og lausafjárstađa er sterk.
Ađalfundurinn samţykkti heimild til stjórnar til ađ selja nýtt stofnfé ađ fjárhćđ 50 milljónir króna og eiga núverandi stofnfjáreigendur forkaupsrétt til 1. september 2023.
Á ađalfundinum afhenti Örn Arnar Óskarsson sparisjóđsstjóri fulltrúum átta björgunarsveita í Ţingeyjarsýslum, styrki samtals ađ fjárhćđ fjórar milljónir króna.
Í stjórn sparisjóđsins voru kjörin Andri B. Arnţórsson, Elísabet Gunnarsdóttir, Eiríkur H. Hauksson, Gerđur Sigtryggsdóttir og Pétur Snćbjörnsson. Varamenn, Helga Sveinbjörnsdóttir og Pétur B. Árnason.