Snorri og Bjarni Jón sýslumeistarar í skólaskák

Snorri Hallgrímsson og Bjarni Jón Kristjánsson urðu Þingeyjarsýslumeistarar í skólaskák en sýslumótið fór fram í Litlulaugaskóla í Reykjadal.

Snorri og Bjarni Jón sýslumeistarar í skólaskák
Íþróttir - - Lestrar 234

Tryggvi Snær, Snorri og Hlynur Snær.
Tryggvi Snær, Snorri og Hlynur Snær.

Snorri Hallgrímsson og Bjarni Jón Kristjánsson urðu Þingeyjarsýslumeistarar í skólaskák en sýslumótið fór fram í Litlulaugaskóla í Reykjadal.

Snorri Hallgrímsson, Borgarhólsskóla, vann eldri flokkinn með 6,5 vinningum af 7 mögulegum. Hlynur Snær Viðarsson, Borgarhólsskóla, varð í öðru sæti og Tryggvi Snær Hlinason Stórutjarnaskóla varð í þriðja sæti.

Bjarni Jón Kristjánsson, Litlulaugaskóla, stóð uppi sem sigurvegari í yngri flokki með 6 vinninga af 7 mögulegum. Jakub Piotr Statkiewicz, Litlulaugaskóla, varð í öðru sæti og Ari Rúnar Gunnarsson, Reykjahlíðarskóla, varð þriðji.

Sjá allt um mótið hér



  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744