Smári Sigurðsson er skákmeistari Goðans 2022

Smári Sigurðsson vann sigur á Skákþingi Goðans/Meistaramót 2022 sem lauk í dag. Smári fékk 5,5 vinninga af 7 mögulegum og fór taplaus í gegnum mótið.

Smári Sigurðsson er skákmeistari Goðans 2022
Íþróttir - - Lestrar 82

Smári Sigurðsson situr hér að tafli árið 2021.
Smári Sigurðsson situr hér að tafli árið 2021.
Smári Sigurðsson vann sigur á Skákþingi Goðans/Meistaramót 2022 sem lauk í dag.
 
Smári fékk 5,5 vinninga af 7 mögulegum og fór taplaus í gegnum mótið. Smári Sigurðsson er því skákmeistari Goðans 2022.
 

Hermann Aðalsteinsson varð í öðru sæti með 5 vinninga. Rúnar Ísleifsson, sem einnig fékk 5 vinninga en var aðeins lægri en Hermann á oddastigum, varð í þriðja sæti. Hart var barist um efstu 5 sætin í mótinu og munaði aðeins 1 vinning á fimm efstu.

Smári Sigurðsson var að vinna titilinn skákmeistari Goðans í fjórða sinn, en áður hafði hann unnið titilinn árin 2007, 2008 og 2013.

Mótið í ár var atskákmót með 20 mín og 5 sek/leik í umhugsunartíma og allir tefldu við alla.

Alls tóku 8 keppendur þátt í mótinu sem fram fór að Vöglum í Fnjóskadal.

Skákþingið var lokapunkturinn á vetrarstarfi Goðans, en þráðurinn verður aftur tekinn upp með haustinu.

Mótið á chess-results


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744