Smári Jónas nýr verkefnastjóri umhverfismála hjá SSNE

Smári Jónas Lúðvíksson hefur hafið störf sem verkefnastjóri hjá SSNE með sérstaka áherslu á umhverfismál.

Smári Jónas Lúðvíksson.
Smári Jónas Lúðvíksson.

Smári Jónas Lúðvíksson hefur hafið störf sem verkefnastjóri hjá SSNE með sérstaka áherslu á umhverfismál.

Í tilkynningu segir að Smári hafi hafið störf þann 3. janúar sl. og er með starfsstöð á Húsavík.

Smári er fæddur og uppalinn á Rifi Snæfellsnesi og er því Rifsari.

Hann lærði við mennta-skólann á Akureyri og tók síðan B.S gráðu í umhverfisskipulagi við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.

Smári vann á handfærabátnum Kára II SH 219 á menntaskólaárunum og með háskóla var hann landvörður við Snæfellsjökulþjóðgarð.

,,Ég elti síðan konuna norður og starfaði við skrúðgarðyrkju á Húsavík rétt nægilega lengi til að klára skrúðgarðyrkjufræði í Landbúnaðarháskólanum.“

Smári hefur umfangsmikla reynslu af umhverfismálum en hann starfaði sem Garðyrkjustjóri hjá Norðurþingi sem þróaðist yfir í stöðu Umhverfisstjóra og hefur hann unnið við umhverfismál á grunni sveitarfélaga í um sex ár.

,,Umhverfismál geta verið margbreytileg en ég tel að við hér á Norðurlandi eystra höfum staðið okkur að mörgu leiti vel og erum á góðum stað, en getum alltaf gert betur. Það eru mjög mikið af tækifærum á svæðinu og með góðri samvinnu getum við verið fremst ekki bara á landsvísu heldur heimsvísu þegar kemur að Loftlags- og úrgangsmálum.“ Segir í tilkynningu á vef SSNE.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744