Smári héraðsmeistari í skák

Smári Sigurðsson varð héraðsmeistari HSÞ 2021 í skák en mótið fór fram sl. fimmtudag á Húsavík.

Smári héraðsmeistari í skák
Íþróttir - - Lestrar 242

Smári Sigurðsson varð héraðs-meistari HSÞ 2021 í skák en mótið fór fram sl. fimmtudag á Húsavík.

Smári fékk 5,5 vinninga af 7 mögulegum. Sigurður Eiríksson vann alla sína andstæðinga og mótið sjálft þar með, en þar sem hann keppti sem gestur á mótinu gat hann ekki unnið til verðlauna.

Sigurður Daníelsson varð annar með 5 vinninga og Tómas Veigar Sigurðarson þriðji með 4 vinninga.

Tveir nýliðar, Húsvíkingurinn Hilmar Freyr Birgisson og Ólafur Ingvi Sigurðsson úr Þistilfirði, voru að taka þátt í sínu fyrsta alvöru skákmóti og gekk þeim vel.

Hilmar Freyr fékk 3 vinninga og Ólafur Ingvi 1 vinning. Gamla kempan Sigurjón Benediktsson tók líka þátt í sínu fyrsta skákmóti í mjög langan tíma. Mótið á chess-results.

Ljósmynd aðsend

Fv. Sigurður Daníelsson, Smári Sigurðsson, Sigurður Eiríksson og Tómas Veigar Sigurðarson


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744