Slysavarnadeildin Hringur kom færandi hendi í Skjólbrekku

Á Slægufundi 26. október s.l. kom Slysavarnadeildin Hringur færandi hendi og gaf Skjólbrekku hjartastuðtæki og sjúkrakassa.

Þorsteinn og Ingibjörg tóku við gjöfunum.
Þorsteinn og Ingibjörg tóku við gjöfunum.

Á Slægufundi 26. október s.l. kom Slysavarnadeildin Hringur færandi hendi og gaf Skjólbrekku hjartastuðtæki og sjúkrakassa. 

Ingunn Guðbjörnsdóttir, Þuríður Pétursdóttir og Ragnheiður Jóna Grétarsdóttir afhentu þessa glæsilegu gjöf fyrir hönd Hrings.

Þorsteinn Gunnarsson sveitarstjóri og Ingibjörg Björnsdóttir umsjónaraðili Skjólbrekku veittu henni viðtöku fyrir hönd sveitarfélagsins.

En Slysavarnadeildin Hringur lét ekki þar við sitja heldur gaf jafnframt öllum nemendum unglingsstigs reykskynjara í herbergið sitt.

Frá þessu er greint á heimasíðu Skútustaðahrepps það sem Hringskonum er þakkað fyrir höfðinglegar gjafir.  


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744