Slökkva þurfti á ofni 1 í kís­il­veri PCC á Bakka

Það getur reynst þrautin þyngri að gangsetja verksmiðju eins og kemur fram í tilkynningu PCC Bakka en slökkva þurfti á ofni 1 í kísilverinu fyrr í dag

Kísilver PCC á Bakka. Mynd úr safni.
Kísilver PCC á Bakka. Mynd úr safni.

Það getur reynst þrautin þyngri að gangsetja verksmiðju eins og kemur fram í tilkynningu PCC Bakka en slökkva þurfti á ofni 1 í kísilverinu fyrr í dag vegna þess að reyk­hreinsi­virki hans var farið að stífl­ast.

"Eftir að hafa gengið vel með báða ofna á fullu afli síðustu daga og náð að framleiða kísilmálm í góðum gæðum eru því miður hnökrar hjá okkur núna.

Reykhreinsivirkið var farið að stíflast og slökkva þurfti á ofni 1 og opna neyðarskorsteina. Það er líklegt að slökkt verði á ofni 2 líka. Vegna þessa sést reykur frá verksmiðjunni og lyktar getur orðið vart. Við vonumst til að koma þessu í lag sem allra fyrst segir í tilkynningunni en í sunnanáttinni ættu lykt og reyk­ur ekki að ber­ast til Húsa­vík­ur.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744