Sláturtíðin gengur vel hjá NorlenskaAlmennt - - Lestrar 176
Haustslátrun sauðfjár í sláturhúsi Norðlenska á Húsavík gengur prýðilega og er á áætlun. Fyrri umferð dilkaslátrunar lokið og síðari umferð hefst í dag, miðvikudag.
Á heimasíðu Norðlenska segir að það sem af er sláturtíð hefur fallþungi dilka á Húsavík verið 16,17 kg, en í allri sláturtíðinni í fyrra á Húsavík var fallþunginn 16,08 kg og haustið 2007 var hann 15,21 kg.
Miðað hefur verið við að haustslátruninni ljúki á Húsavík þann 23. október, en að sögn Sigmundar Hreiðarssonar vinnslustjóra bætast væntanlega tveir sláturdagar við frá upphaflegri áætlun.
Þá er slátursala er komin í fullan gang hér á Húsavík og gengur vel en vert er að undirstrika að henni lýkur föstudaginn 9. október.