Sláturtíðin gengur vel hjá Norlenska

Haustslátrun sauðfjár í sláturhúsi Norðlenska á Húsavík gengur prýðilega og er á áætlun. Fyrri umferð dilkaslátrunar lokið og síðari umferð hefst í dag,

Sláturtíðin gengur vel hjá Norlenska
Almennt - - Lestrar 177

Haustslátrun sauðfjár í sláturhúsi Norðlenska á Húsavík gengur prýðilega og er á áætlun. Fyrri umferð dilkaslátrunar lokið og síðari umferð hefst í dag, miðvikudag.

Á heimasíðu Norðlenska segir  að það sem af er sláturtíð hefur fallþungi dilka á Húsavík verið 16,17 kg, en í allri sláturtíðinni í fyrra á Húsavík var fallþunginn 16,08 kg og haustið 2007 var hann 15,21 kg.

 

Miðað hefur verið við að haustslátruninni ljúki á Húsavík þann 23. október, en að sögn Sigmundar Hreiðarssonar vinnslustjóra bætast væntanlega tveir sláturdagar við frá upphaflegri áætlun.

Þá er slátursala er komin í fullan gang hér á Húsavík og gengur vel en vert er að undirstrika að henni lýkur föstudaginn 9. október.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744