Skútustađahreppur kaupir jörđina KálfaströndAlmennt - - Lestrar 315
Gengiđ hefur veriđ frá kaupsamningi um jörđina Kálfaströnd (Kálfaströnd 1 og Kálfaströnd 2) viđ eiganda hennar, Elínu Einarsdóttur.
Skútustađahreppur kaupir jörđina og fasteignir sem henni fylgja á 140 milljónir. Stćrđ jarđarinnar er um 1500 hektarar og er hún međal stćrstu veiđiréttarhafa í Mývatni. Kálfaströnd á land ađ Höfđa, sem er í eigu Skútustađahrepps og er vinsćlt útivistarsvćđi Mývatnssveitar.
Á heimasíđu hreppsins segir ađ viđrćđur um kaupin hafi stađiđ yfir frá vordögum 2021, međ hléum.
"Ţađ er sameiginleg framtíđarsýn kaupanda og seljanda ađ sveitarfélagiđ Skútustađahreppur muni um ókomna tíđ stuđla ađ vernd náttúru Kálfastrandar. Sameiginleg framtíđarsýn felur jafnframt í sér ađ almenningur eigi ţess kost ađ njóta náttúru jarđarinnar á grundvelli skipulags. Skútustađahreppur mun vinna ađ ţróun skipulags og innviđauppbyggingar á Kálfaströnd í samrćmi viđ ţessa framtíđarsýn.
Međ kaupunum opnast sveitarfélaginu möguleikar til ađ gefa íbúum og gestum aukiđ ađgengi ađ náttúruperlunni Mývatni á grundvelli langtíma skipulags og byggja upp stefnumiđađ samstarf viđ menntastofnanir, stofnanir ríkisins, sjóđi á sviđi náttúruverndar og innviđauppbyggingar og ađra sem láta sig einstaka náttúru Mývatnssveitar varđa. Kaupin gefa sveitarfélaginu jafnframt ađgang ađ húsakosti sem nýst getur áhaldahúsi og stutt viđ byggđaţróun sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn Skútustađahrepps vill ţakka Elínu Einarsdóttur fyrir viđskiptin og ţađ traust sem hún sýnir sveitarfélaginu međ ţví ađ fela ţví varđveislu og skipulag einstakrar náttúru Kálfastrandar".