29. sep
Skúta í vandræðum í Húsavíkurhöfn sl. mánudagAlmennt - - Lestrar 614
Skömmu eftir hádegi sl. mánudag lenti erlend skúta í vandræðum í Húsavíkurhöfn.
Nokkuð hvass var þegar áhöfn hennar hugðist láta úr höfn.
Björgunarsveitin Garðar var kölluð út og með hjálp hennar og fleiri aðila tókst að koma skútunni upp að Norðurgarðinum og festa hana þar.
Ljósmyndari 640.is náði nokkrum myndum þegar aðgerðum var að ljúka og með því að smella á þær er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.