Skrifað undir samning um verkefni í orkutengdri ferðaþjónustu

Landsvirkjun og Myvatn Volcano Park (MVP) hafa undirritað samstarfssamning um tilraunaverkefni í orkutengdri ferðaþjónustu.

Landsvirkjun og Myvatn Volcano Park (MVP) hafa undirritað samstarfssamning um tilraunaverkefni í orkutengdri ferðaþjónustu.

Í tilkynningu segir að MVP hyggist skipuleggja ferðir undir nafninu Living on a Volcano og fær til þess aðgengi að vinnslusvæði Landsvirkjunar við Kröflu og Bjarnarflag.

Markmið samstarfssamningsins er að auka verðmætasköpun á grundvelli orkuauðlinda og innviða Landsvirkjunar.

Í ferðunum Living on a Volcano læra gestir um fjölnýtingu eldfjalla á Íslandi, jarðhitann og hinar góðu og slæmu hliðar sambýlis mannsins við eldfjallið.

Leiðsögumenn verða jarðfræðingarnir Helgi Arnar Alfreðsson og Júlía Katrín Björke, sem hafa stundað rannsóknir og náttúrueftirlit í Mývatnssveit í eldfjalla- og jarðhitafræðum undanfarin ár.

Landsvirkjun-Myvatn Volcano Park

Guðrún Ólafía Brynleifsdóttir, verkefnisstjóri á markaðs- og viðskiptaþróunarsviði, Helgi Arnar Alfreðsson og Júlía Katrín Björke hjá Myvatn Volcano Park og Haraldur Hallgrímsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar og sölu, eftir undirritun samningsins.

Ljósmynd. landsvirkjun.is


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744