Skákþing Norðlendinga á Gamla-Bauk um helginaAðsent efni - - Lestrar 41
Skákþing Norðlendinga 2010 fer fram á veitingastaðnum Gamla Bauk á Húsavík helgina16-18 apríl. Það er skákfélagið Goðinn sem sér um mótshaldið. Mótið er opið ölluskákáhugafólki.
Tefldar verða 7 umferðir eftir monrad-kerfi, 4 atskákir og 3 kappskákir. Mótiðverður reiknað til Íslenskra skákstiga og til FIDE-skákstiga.
Núverandi skákmeistari Norðlendinga er Gylfi Þórhallsson.
Skákstjóri verður Ólafur Ásgrímsson.
Dagskrá:
Föstudagur 16 apríl kl 20:00 1-4 umferð. Atskák 25 mín á mann
Laugardagur 17 apríl kl 10:30 5. umferð. 90 mín + 30 sek/leik
Laugardagur 17 apríl kl 16:30 6. umferð. 90 mín + 30 sek/leik
Sunnudagur 18 apríl kl 10:30 7. umferð. 90 mín + 30 sek/leik
Verðlaun:
1. sæti. 50.000 krónur (lögheimili á Norðurlandi)
2. sæti. 25.000 krónur ------------------------------
3. sæti. 10.000 krónur ------------------------------
1. sæti. 50.000 krónur ( lögheimili utan Norðurlands)
2. sæti. 25.000 krónur ------------------------------------
3. sæti. 10.000 krónur ------------------------------------
Peningaverðlaunum verður skipt á milli manna, verði menn jafnir að vinningum í báðumflokkum.
Aukaverðlaun:
Efstur skákmanna undir 1800 íslenskum skákstigum (lögheimili á Norðurl.)
Efstur heimamanna (Félagsmanna Goðans)
Efstur stiglausra. (lögheimili á Norðurl.)
Eingöngu verður hægt að vinna til einna aukaverðlauna.
Hraðskákmót Norðlendinga 2010 verður svo haldið sunnudaginn 18. apríl á sama stað oghefst það eigi fyrr en kl 15:00. Ekkert þátttökugjald er í það mót.
Núverandi Hraðskákmeistari Norðlendinga er Rúnar Sigurpálsson
Skráning og þátttökugjald.
Skráning í mótið er hafin og fer hún fram efst á heimasíðu skákfélagsins Goðans, ásérstöku skráningaformi. Skráningu verður lokað á hádegi 16 apríl.
Þátttökugjaldið í mótið er krónur 2500 fyrir 17 ára og eldri, en 1000 krónur fyrir16 ára og yngri.
Mögulegar breytingar á framantöldum upplýsingum vera kynntar hér á síðunni, ef meðþarf.
Nánari upplýsingar:
Allar upplýsingar um mótsstaðinn, gistimöguleika, hliðarviðburði, og fl. er að finna
hér:http://www.godinn.blog.is/blog/godinn/entry/983547/
Upplýsingar um skráða keppendur er að finna hér:
http://spreadsheets.google.com/ccc?key=0Arg3nCphWhFydDR1R09NWVZRUFVjYmQ1WDVDU1ptR0E&hl=en
Mótið á chess-results: http://chess-results.com/tnr32006.aspx
Hermann Aðalsteinsson formaður skákfélagsins Goðans veitir allar upplýsingar ummótið í síma 4643187 og 8213187. lyngbrekka@magnavik.is