Skákfélagiđ Gođinn vann sinn meistarartitil um helgina

Skákfélagiđ Gođinn vann ótrúlegan sigur í 2. deild á Íslandsmóti skákfélaga, sem tefld var á Selfossi í gćrkvöld, ţegar liđiđ vann stór sigur á A-sveit KR

Sigurreifir Gođamenn međ verđlaun sín.
Sigurreifir Gođamenn međ verđlaun sín.

Skákfélagið Goðinn vann ótrúlegan sigur í 2. deild á Íslandsmóti skákfélaga, sem tefld var á Selfossi í gærkvöld, þegar liðið vann stór sigur á A-sveit KR 6-0.

Á sama tíma tapaði helsti keppinautur Goðans, Víkingaklúbburinn, stórt fyrir B-sveit Hellis. Fyrir lokaumferðina í gærkvöld hafði Víkingaklúbburinn þrjá vinninga í forskot á Goðann og voru líkurnar því nánast engar á öðru en sigri Víkingaklúbbsins í 2. deild. En annað kom á daginn.

Þetta er fyrsti meistaratitill Goðans frá stofnun félagsins árið 2005. Með sigrinum tryggði Goðinn sér sæti í 1. deild að ári, fyrsta sinn og teflir því meðal þeirra bestu á næsta keppnistímabili.

Sjá meira hér og á heimasíðu Goðans.

641.is


  • Herna

640.is | Ábyrgđarmađur Hafţór Hreiđarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744