Sjálfvirk veðurathugunarstöð komin á skíðasvæðið á Reykjaheiði

Um þessar mundir eru skíðasvæði landsins komin á fullt og má það sama segja um svæðið uppá Reykjaheiði.

Skíðasvæðið við Reyðarárhnjúk.
Skíðasvæðið við Reyðarárhnjúk.

Um þessar mundir eru skíðasvæði landsins komin á fullt og má það sama segja um svæðið uppá Reykjaheiði. 

Fram kemur á heimasíðu Norðurþings að göngubrautir eru lagðar flest alla daga og lyftan er búin að vera opin undanfarna daga.

Skíðasvæðið stendur í um 370 m. yfir sjávarmáli og því geta veðuraðstæður verið ólíkar því sem er í bænum.

Til að bæta upplýsingamiðlun og þjónustu við gesti svæðisins hefur verið sett upp sjálfvirk veðurathugunarstöð. Stöðin mælir helstu veðurupplýsingar í rauntíma og því hvetjum við alla sem ætla sér á skíði að kíkja á stöðina áður en lagt er af stað. 

Upplýsingar úr veðurathugunarstöðinni sem og aðrar upplýsingar  má finna á vefsvæði skíðasvæðisins hér

Reglulegar færslur um aðstæður og veður fá síðan finna á Facebook síðu Skíðasvæðisins

Að auki er hægt að fylgjast með skíðaspori í rauntíma á www.skisporet.no


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744