Sjálfstæðismenn á Húsavík og í nágrenni ályktaAðsent efni - - Lestrar 394
Sjálfstæðisfélag Húsavíkur og nágrennis.
Félagsfundur 15. desember 2008.
Ályktun:
Ánægjulegur og góður fundur hjá Sjálfstæðisfélagi Húsavíkur og nágrennis
styður atvinnuuppbyggingu í héraðinu sem byggir á orkunýtingu og
stóriðju. Fundurinn fagnar því að Alcoa hefur ákveðið að byggja iðjuver
á Bakka við Húsavík og nýta til þess umhverfisvæna orku af háhitasvæðum
Þingeyjarsýslna.
Sjálfstæðisfélag Húsavíkur ætlast til þess að kvóti til fiskveiða verði
þegar í stað aukinn um 33% enda byggir það á vísindalegum athugunum á
fiskistofnum. Öll fjárfesting til veiða og vinnslu til aukinnar
nýtingar er til staðar og krefst ekki fjárútláta.
Fundurinn lýsir því yfir að mörg brýn verkefni bíði úrlausnar í
þjóðfélaginu. Íslenskt samfélag er á tímamótum og það getur ekki verið
mest aðkallandi að ýta þjóðinni út í átök um aðild að bandalagi
Evrópuþjóða.
Rétt er að taka upp nýjan gjaldmiðil sem fyrst til að koma hjólum
atvinnulífs og mannlífs af stað, og til þess að bæta samningsstöðu
þjóðarinnar út á við.
Við óskum öllum gleðilegra jóla og friðsældar á nýju ári baráttu og bjartsýni.
Fh. stjórnar Sjálfstæðisfélags Húsavíkur og nágrennis,
Hannes Höskuldsson, formaður.
Sigurjón Benediktsson, ritari.