Sjáðu húsin - Kári sýnir í Safnahúsinu

Íbúar Norðurþings, Þingeyjarsveitar og furstadæmanna í Þingeyjarþingi hinu forna, gestir þeirra og aðrir ferðalangar.

Sjáðu húsin - Kári sýnir í Safnahúsinu
Fréttatilkynning - - Lestrar 756

Kári Sig. og Brynja.
Kári Sig. og Brynja.

Íbúar Norðurþings, Þingeyjarsveitar og furstadæmanna í Þingeyjarþingi hinu forna, gestir þeirra og aðrir ferðalangar. 

Ykkur er boðið að vera við opnun sýningarinnar, ‘‘Sjáðu húsin, þau eru horfin‘‘ miðvikudaginn 16. apríl nk. kl. 16:oo. Þiggja veitingar, sjá sýninguna, spjalla við hvert annað og hafa gaman að í aðdraganda páska. Allt sem með þarf er góða skapið.


Árið 1990 hélt ég myndlistarsýningu í Safnahúsinu í tilefni 40 ára afmælis Húsavíkurbæjar. Myndefnið, hús og menjar frá staðnum sem var unnið eftir blýantaskissum, allt frá því að ég kom til Húsavíkur í fyrsta skipti á skólaferðalagi, einnig á fyrstu árum mínum á Húsavík. Viðfangsefni mitt í myndlist er og hefur verið fram til þessa, íslensk náttúrustemmning til sjávar og sveita, hús, kofar og ýmsar mannvistarleifar. Þá hafa bátar og hlutir tengdir útgerð höfðað til mín svo ekki sé talað um veður og veðrabrigði en þetta er eitthvað að breytast.

Sýningin.

Að þessu sinni samanstendur sýning mín af 30 myndverkum og er hún frábrugðin öðrum mínum sýningum að mörgu leiti. Myndefnið er eitt og það sama, það er horfið sjónum bæjarbúa og mörgum gleymt. Vinnuheiti mitt er Torfakofar, (Arnviðar eða Dondakofar.) Fyrstu myndina gerði ég í þurrkrít árið 1968 þegar ég bjó á Ásgarðsvegi 16, þetta eru hús (kofaþyrping) er stóðu við rætur Húsavíkurfjalls skammt frá þar sem skíðalyftan er nú. Þarna var stundaður búskapur, með hross, sauðfé, hænsni o.fl. Þetta mótíf er mér mjög kært og er unnið í margskonar miðla, verkin eru unnin á árunum 2012 til 2014. Fyrsta myndin var unnin í þurrkrít þá eru verk í olíu, akrýl, kaffi, bleki, túss, vatnslit, olíukrít, gvass, pastel, blýanti, penna, málningu, lakki o.fl. meira að segja samklipp og er þá ekki allt upp talið. Myndverkin eru frá öllum árstíðum. Sýningaferill. Þetta er átttugasta sýning mín frá árinu 1964 til þessa árs. Einkasýningar eru 46 og þátttaka í 34 samsýningum á þessu 50 ára tímabili eða 1,6 sýning að jafnaði á ári. Oftast hef ég sýnt á Húsavík, 18 einkasýningar og þátttaka í 12 samsýningum frá 1970 til dagsins í dag. Myndlausu tímabilin mín tvö sem ég kalla svo eru frá 1970 – 1978 og það seinna frá 2001 – 2009. Frá því að ég flutti frá Húsavík árið 1999 hef ég haldið 2 sýningar á Húsavík. Þá fyrri utan á vegg Langaneshúss á Mærudögum 2009 og árið 2011 í Túni ásamt syni mínum, Röðli Rey og dóttursyni, Fylki de Jong. Þessi sýning verður sú 3ja og var kominn tími á að sýna í Safnahúsinu en þar sýndi ég fyrst árið 1978 þá var húsið hálf klárað að innan. Síðasta sýning mín í Safnahúsinu á Húsavík var í júní 1992. Þannig líður tíminn, 22 ár síðan.

Að lokum.

Til stóð að sýna þessi verk á Húsavík í byrjun desember á liðnu ári. Töf vegna framkvæmda í Safnahúsinu komu í veg fyrir það. Ég var ekki sáttur við að sýna verkin fyrst í sýningasal okkar Gróskufélaga í Garðabæ. Myndefnið og vinnslan, fannst mér að ætti fyrst að koma fyrir ykkar sjónir og þið ættuð einnig fyrsta möguleika á að eignast verkin. Ég hef takmarkaðan áhuga á að flytja verkin til baka og hef því verðlagt þau með tilliti til þess. Munar þar allt frá kr. 5.000 til kr. 80.000 á mynd sem verðið er lægra en ella. Þá er hægt að semja um afborganir og möguleiki er á vöruskiptum og að taka tilboðum. Kári Sigurðsson, myndlistamaður


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744