06. maí
Sigurður Hrannar skoraði sigurmarkiðÍþróttir - - Lestrar 161
Keppni í 2. deild karla í knatt-spyrnu hófst í gær og fengu Völsungar Hött/Huginn í heimsókn á PCC völlinn.
Völsungur hafði betur í leiknum en Sigurður Hrannar Þorsteinsson, sem er í láni frá Skagamönnum, skoraði sigurmarkið á 69. mínútu.
Góð byrjun hjá strákunum sem spáð er 8. sæti í spá þjálfara liðanna í 2. deild en Fótbolti.net stóð fyrir henni.
Sigurður Hrannar skoraði eina mark leiksins í gær.