Sigurður Hallmarsson sýnir í Safnahúsinu

Það var fjölmenni í Safnahúsinu síðdegis í dag þegar Sigurður Hallmarsson opnaði þar málverkasýningu.

Sigurður Hallmarsson sýnir í Safnahúsinu
Almennt - - Lestrar 374

Sigurður Hallmarsson við eitt verka sinna.
Sigurður Hallmarsson við eitt verka sinna.

Það var fjölmenni í Safnahúsinu síðdegis í dag þegar Sigurður Hallmarsson opnaði þar málverkasýningu.

Þar sýnir meistarinn um fimmtíu verk sem hann hefur málað nýlega og eru þau hver öðru fallegri.

Verkin verða sýnd bæði í sal á efstu hæð og á jarðhæð.  Sýningin verður opin 17-19 sunnudaginn 2. febrúar og síðan á opnunartíma safnsins.

Boðið var upp á veitingar í tilefni opnunar sýningarinnar sem og tilkomu nýju lyftunnar sem komin er í gagnið.

Hér gefur að líta nokkrar myndir frá því í dag.

Halldór, Brynhildur og Ásmundur.

Sigurður Illigason og Hallmar Sigurðsson.

Opnun málverkasýningar Sigurðar Hallmarssonar.

Opnun málverkasýningar Sigurður Hallmarssonar.

Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í stærri upplausn.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744