Sigur í fyrsta heimaleik stelpnanna - Tap hjá strákunum

Völsungur hóf leik í 2. deild kvenna í dag þegar þær fengu Álftanes í heimsókn á PCC völlinn.

Krista Eik skoraði bæði mörk Völsungs
Krista Eik skoraði bæði mörk Völsungs

Völsungur hóf leik í 2. deild kvenna í dag þegar þær fengu Álftanes í heimsókn á PCC völlinn.

Völsungar byrjuðu leikinn vel og voru ávallt líklegri til að skora en gestirnir komust þó yfir í fyrri hálfleik og staðan 0-1 þegar gengið var til leikhlés.
 
Heimastúlkur sýndu meiri áræðni í síðari hálfleiknum og uppskáru eftir því. Krista Eik Harðardóttir skoraði tvö glæsileg mörk og var það fyrri sérdeilis fallegt, Úrslitin 2-1 og þrjú stig í höfn.
 
Strákarnir töpuðu fyrir Selfossi

Í gær tók karlalið Völsungs á móti Selfossi í 2. deildinni og þar var hart barist.
 
Það fór svo að einungis eitt marka var skorað og það gerðu gestirnir sem spiluðu einum færri síðustu tíu mínútur leiksins. Völsungar reyndu hvað þeir gátu til að koma boltanum í net sunnanmann en ekkert gekk.
 
Völsungar því stigalausir eftir fyrstu tvær umferðirnar en næsti leikur er á útivelli um næstu helgi gegn Reyni Sandgerði.
 
Ljósmynd Hafþór
 
Viridiana Vazquez Kloss lék sinn fyrsta deildarleik með Völsungi en hún kemur frá Mexíkó.
 
Ljósmynd Hafþór
 
Gestur Aron Sörensson í baráttu við leikmann Selfossliðsins.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744