Signý Stefánsdóttir er íþróttamaður HSÞ 2012

Signý Stefánsdóttir Akstursíþróttafélagi Mývatnssveitar var valin íþróttamaður HSÞ árið 2012, en tilkynnt var um valið á ársþingi HSÞ sem fram fór á

Signý Stefánsdóttir er íþróttamaður HSÞ 2012
Íþróttir - - Lestrar 409

Signý Stefánsdóttir íþróttamaður HSÞ 2012.
Signý Stefánsdóttir íþróttamaður HSÞ 2012.

Signý Stefánsdóttir Akstursíþróttafélagi Mývatnssveitar var valin íþróttamaður HSÞ árið 2012, en tilkynnt var um valið á ársþingi HSÞ sem fram fór á Greinvík í dag.

Í umsögn um Signý Stefánsdóttur segir þetta:

Signý hefur á undanförnum árum unnið fjölda Íslandsmeistaratitla í akstursíþróttum, m.a. í ískrossi, motocrossi og þolakstri. Hún var valin akstursíþróttakona ársins árið 2008 hjá MSÍ, keppti erlendis í heimsmeistaramóti kvenna í motocrossi árið 2009 og endaði í 27. sæti. Var töluvert frá keppni árið 2010 vegna meiðsla, en varð Íslandslandsmeistari í ískrossi árið 2011 og nú á síðasta ári varð hún Íslandsmeistari í öllum greinum sem keppt var í á vegum Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambands Íslands og var að auki valin akstursíþróttakona ársins 2012.

Signý Stefánsdóttir er fædd 8. nóvember 1993 og er því 19 ára. Hún hefur búið í Mývatnssveit  í rúm 8 ár, en stundar nú háskólanám við Háskólann á Bifröst. Signý lauk stúdentsprófi á 3. árum frá Verkmenntaskólanum á Akureyri vorið 2012. Signý er afar metnaðarfull ung kona og auk þess að stunda háskólanám, þá leggur hún stund á flugnám hjá Flugskóla Akureyrar og lauk sólo prófi þaðan í ágúst síðastliðnum.  Akstursíþróttafélagi Mývatnssveitar þykir Signý vera verðugur fulltrúi Þingeyinga í kjörinu um íþróttamann ársins 2012 hjá HSÞ.

Íþróttamenn HSÞ 2012

Einnig var tilkynnt um val á íþróttafólki úr hinum ýmsu íþróttagreinum sem stundaðar eru hjá aðildarfélögum HSÞ. Eftirtaldir voru valdir.

Pétur Þórir Gunnarsson            Glímumaður HSÞ 2012
Valdís Jósefsdóttir                   Sundamaður HSÞ 2012
Signý Stefánsdóttir                  Akstursíþróttakona HSÞ 2012
Sigurður Unnar Hauksson         Skotíþróttamaður HSÞ 2012
Arnar Vilberg Ingólfsson           Golfmaður HSÞ 2012
Sigrún Lilja Sigurðardóttir         Fimleikamaður HSÞ 2012
Þorsteinn Ingvarsson                Frjálsíþróttamáður HSÞ 2012
Hrannar Björn Steingrímsson     Knattspyrnumaður HSÞ 2012
María M Bjarkadóttir                 Hestaíþróttamaður HSÞ 2012
Þorsteinn Aðalsteinsson             Bogfimimaður HSÞ 2012

Á ársþinginu voru þau Björn Ingólfsson Magna og Friðrika Björg Illugadóttir Eflingu heiðruð. Björn var sæmdur starfsmerki UMFÍ á þinginu í morgun fyrir vel unnin störf í áratugi og Friðrika Björg var sæmd silfurmerki ÍSÍ einnig fyrir vel unnin störf. 

Sjá nánar um ársþing HSÞ á 641.is en þaðan eru meðfylgjandi myndir fengnar.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744