Samfylkingin í Norðurþingi og Suður Þingeyjarsýslu ályktar

Ályktun frá Samfylkingunni í Þingeyjarsýslum     Samfylkingin í Þingeyjarsýslum lýsir yfir fullum stuðningi við formann flokksins, Ingibjörgu Sólrúnu

Ályktun frá Samfylkingunni í Þingeyjarsýslum

 

 

Samfylkingin í Þingeyjarsýslum lýsir yfir fullum stuðningi við formann flokksins, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur  og ráðherra Samfylkingar-innar í þeim erfiðu verkefnum sem þau eru að vinna að.

Við Jafnaðarmenn í Þingeyjarsýslum lýsum jafnframt yfir fullum stuðningi við ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks og teljum ekki ráðlegt að efna til kosinga nú, þegar þjóðin er í miðjum ólgusjó kreppu og risavöxnum vandamálum sem þurfa úrlausna strax. Margra vikna kosningabarátta, við þessar aðstæður, er ábyrgðar-leysi.

Í þeim samdrætti sem nú blasir við á Samfylkingin að standa vörð um velferðarkerfi þjóðarinnar. Leita verður allra leiða til þess að draga úr atvinnuleysi og sívaxandi skuldabyrði heimilanna. Forgangsröðun jafnaðarmanna verður að halda.

Samfylkingin í Þingeyjarsýslum leggur á það þunga áherslu að haldið verði áfram atvinnuuppbyggingu á Norðausturlandi og ekki kvikað frá þeirri stefnu sem mörkuð hefur verið við uppbyggingu álvers við Bakka og nýtingu þeirrar orku sem er hér á svæðinu.  Með því móti verða til hundruð starfa sem nauðsynleg eru til að vega á móti því atvinnuleysi sem nú þegar er brostið á og mun aukast verulega á næstu mánuðum.

Við lýsum yfir fullum stuðningi við þau sjónarmið sem formaður flokksins Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur talað fyrir lengi og ítrekað nýverið  um aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Samfylkingin hefur leitt og mun leiða umræðuna um aðild að Evrópusambandinu og ber því  að hefja aðildarviðræður á næstu mánuðum.

Nú í fyrsta skiptið er möguleiki að þetta baráttumál Jafnaðarmann á Íslandi hljóti aukin stuðning almennings.

Innganga í Evrópusambandið er eitt brýnasta hagsmunamál þjóðarinnar.  Aðild að Evrópusambandinu er efnhagsleg og félagsleg nauðsyn fyrir íbúa þessa lands.

Skilgreina verður samningsmarkmið aðildarviðræðna vegna inngöngu í Evrópusambandið. Að þeim loknum fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um fulla aðild að sambandinu og upptöku Evru sem framtíðar gjald-miðils þjóðarinnar.

 

Samfylkingarfélagið í Norðurþingi og Suður-Þingeyjarsýslu.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744