Safn um könnunarsögu opnar á Húsavík

Þessa dagana er unnið að uppsetningu nýs safns sem opnar á Húsavík í vor, en þar verður fjallað um könnunarsögu heimsins, landkönnun víkinga, geimferðir,

Safn um könnunarsögu opnar á Húsavík
Almennt - - Lestrar 525

Merki Könnunarsögusafnsins á Húsavík.
Merki Könnunarsögusafnsins á Húsavík.

Þessa dagana er unnið að uppsetningu nýs safns sem opnar á Húsavík í vor, en þar verður fjallað um könnunarsögu heimsins, landkönnun víkinga, geimferðir, pólfara og fleira.

 
"Þingeyjarsýslur eiga sterkar tengingar við könnunarsögu heimsins. Hingað komu landkönnuðirnir Garðar og Náttfari og sá síðarnefndi settist hér að og nam land. 1100 árum síðar koma svo hingað til æfinga fyrstu mennirnir sem yfirgefa jörðina til að kanna Tunglið. Þessar tengingar eru merkilegar og vert að gera þeim skil," segir Örlygur Hnefill Örlygsson, einn af aðstandendum safnsins. Hann segir ferðafólk sýna þessum sögum mikinn áhuga og að mikilvægt sé að fjölga afþreyingarmöguleikum á svæðinu og að þetta safn sé eitt skref í þá átt.
 
Safnið nefnist á ensku The Exploration Museum og er það Friðrik Sigurðsson sem leggur því til húsnæði í Hlöðufelli, en þar hefur áður verið stunduð áhugaverð safnastarfsemi. Auk þess að fjalla um könnun víkinga og geimfara verður í safninu tímaás um könnunarsögu heimsins, allt frá ferðum Pýþeasar til Íslands árið 400 f.kr. til okkar tíma könnuða.
 
"Frá mörgu áhugaverðu er hægt að segja. Til að mynda er vitað að Christopher Columbus kom hingað til lands í febrúar árið 1477 og fékk líklega hér upplýsingar um land í vestri. Þá eru merkilegar sögur bæði Guðríðar Þorbjarnardóttur og Gunnbjarnar, svo fátt eitt sé nefnt. Þá má geta þess að Bill Anders úr Apollo 8 var staddur hér á Húsavík í sumar og var hrifinn af þessum hugmyndum. Hann var fyrstur til að fljúga til og umhverfis tunglið árið 1968, en ári síðar lenti Armstrong á yfirborði þess."
 
Meðal sýningarmuna verður geimfarabúningur frá NASA, steinn frá tunglinu og áhöld víkinga og landkönnuða. Safnið opnar laugardaginn 10. maí 2014 og mun safnið næsta vetur standa fyrir röð fyrirlestra um landnám og landkönnun.
Myndin er tekin sumarið 1967 við Nautagil.
Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur, Bill Anders úr áhöfn Apollo 8 og Dr. Ted Foss, yfirmaður jarðfræðisviðs hjá NASA. Myndin er tekin sumarið 1967 við Nautagil.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744