Rokka í hverri höfn-Byrja á Húsavík

Eikarbáturinn Húni II mun sigla í kringum landið í júlí og Áhöfnin rokka í hverri höfn.

Rokka í hverri höfn-Byrja á Húsavík
Fréttatilkynning - - Lestrar 641

Hljómsveitin Áhöfnin um borð í Húna II.
Hljómsveitin Áhöfnin um borð í Húna II.

Eikarbáturinn Húni II mun sigla í kringum landið í júlí og Áhöfnin rokka í hverri höfn. 

Hugmyndin um að sigla hringinn í sumar og halda tónleika í hverri höfn kviknaði í vetur í samtölum tónlistarmannanna og Jóns Þórs Þorleifssonar. 

Strax var ákveðið að ferðin yrði ekki í gróðaskyni heldur var Slysavarnarfélaginu Landsbjörg boðið að selja inn á tónleikana og safna peningum í starfsemi sína. 

Síðar var svo RÚV boðin aðkoma að verkefninu og hefur verið ákveðið að fylgja túrnum eftir með sjónvarps og útvarpsþáttagerð í allt sumar.  Það eru Margrét Blöndal og Felix Bergsson sem leiða það verkefni.

Húni II

Húni II er 50 ára gamall eikarbátur, smíðaður í skipasmíðastöð KEA á Akureyri.  Margir þekkja þennan fallega bát sem gjarnan liggur við Torfunesbryggju í miðbæ Akureyrar. 

Hann hefur aldrei áður gegnt hlutverki rokkbáts.

Tónleikarnir verða 16 talsins og fyrstu tónleikar verða á Húsavík miðvikudaginn 3. júlí.  Síðan verður haldið austur og siglt í kringum landið.

Áhöfnin

Áhöfnin er hljómsveit skipuð tónlistarmönnunum Jónasi Sig, Láru Rúnars, Mugison, Ómari Guðjónssyni, Guðna Finnssyni og Arnari Gíslasyni. 

Áhöfnin á Húna


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744