Rekstrahagnaður Sparisjóðs Suður-Þingeyinga 34 milljónirFréttatilkynning - - Lestrar 875
Sparisjóðurinn hefur á undanförnum árum veitt sérstaka styrki til málefna sem styrkja innviði samfélagsins, eins og samþykktir hans segja til um. Að þessu sinn voru veittir tveir styrkir að upphæð kr. 500.000 hvor. Styrkina hlutu Hafdís Sigurðardóttir frjálsíþróttakona úr Þingeyjarsveit og Kvenfélagasamband Suður-Þingeyinga til endurbóta á Húsmæðraskólanum á Laugum, sem er í eigu sambandsins.
Á fundinum var samþykkt að auka stofnfé sparisjóðsins um allt að 140 mkr og gert ráð fyrir að bjóða nýjum stofnfjáreigendum helming þess fjár. Núverandi stofnfjárhafar sem eru um 250 hafa hins vegar forkaupsrétt að allt að 70 mkr.
Stjórn sparisjóðsins skipa nú: Ari Teitsson Hrísum, Helgi Héðinsson Geiteyjarströnd, Kolbrún Ulfsdóttir Rauðuskriðu, Margrét Hólm Valsdóttir Húsavík og Reinhard Reynisson Húsavík.
Sigurður Skúlason og Elín Sigríður Karlsdóttir sem tóku við styrk dóttur sinnar Hafdísar og Mjöll Matthíasdóttir sem tók við styrk Kvenfélagasambands Suður-Þingeyinga eru hér á mynd með Ara Teitssyni formanni stjórnar Sparisjóðs Suður-Þingeyinga.
Ari Teitsson






























































640.is á Facebook