Rekstrahagnaður Sparisjóðs Suður-Þingeyinga 34 milljónir

Aðalfundur Sparisjóðs Suður-Þingeyinga var haldinn á Breiðumýri 5. maí sl.

Rekstrahagnaður Sparisjóðs Suður-Þingeyinga 34 milljónir
Fréttatilkynning - - Lestrar 876

Ari Teitsson ásamt fulltrúum styrkþega.
Ari Teitsson ásamt fulltrúum styrkþega.
Aðalfundur Sparisjóðs Suður-Þingeyinga var haldinn á Breiðumýri 5. maí sl. 

Rekstur sparisjóðsins gekk vel á árinu 2015 og var rekstrar-hagnaður rúmar 34 mkr.

Viðskiptavinum sjóðsins fjölgaði umtalsvert á árinu, enda virðist aukinn áhugi vera á fjármála-starfsemi sem byggir fremur á samfélagslegum forsendum en hámarks ávöxtun eigin fjár.

 

Sparisjóðurinn hefur á undanförnum árum veitt sérstaka styrki til málefna sem  styrkja innviði samfélagsins, eins og samþykktir hans segja til um.  Að þessu sinn voru veittir tveir styrkir að upphæð kr. 500.000 hvor. Styrkina hlutu Hafdís Sigurðardóttir frjálsíþróttakona úr Þingeyjarsveit og Kvenfélagasamband Suður-Þingeyinga til endurbóta á Húsmæðraskólanum á Laugum, sem er í eigu sambandsins.

Á fundinum var samþykkt  að auka stofnfé sparisjóðsins um allt að 140 mkr og gert ráð fyrir að bjóða nýjum  stofnfjáreigendum helming þess fjár. Núverandi stofnfjárhafar sem eru um 250 hafa hins vegar forkaupsrétt að allt að 70 mkr.

Stjórn sparisjóðsins skipa nú:  Ari Teitsson Hrísum, Helgi Héðinsson Geiteyjarströnd, Kolbrún Ulfsdóttir Rauðuskriðu, Margrét Hólm Valsdóttir Húsavík og Reinhard Reynisson Húsavík.

Sparisjóður Suður-Þingeyinga

Sigurður Skúlason og Elín Sigríður Karlsdóttir sem tóku við styrk dóttur sinnar Hafdísar og Mjöll Matthíasdóttir sem tók við styrk Kvenfélagasambands Suður-Þingeyinga eru hér á mynd með Ara Teitssyni formanni stjórnar Sparisjóðs Suður-Þingeyinga.

Ari Teitsson


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744