Rafnar Máni í Þór

Rafnar Máni Gunnarsson er genginn til liðs við knattspyrnulið Þórs Á akureyri frá uppeldisfélagi sínu, Völsungi.

Rafnar Máni í Þór
Íþróttir - - Lestrar 193

Rafnar Máni í leik með Völsungi sl. sumar.
Rafnar Máni í leik með Völsungi sl. sumar.

Rafnar Máni Gunnarsson er genginn til liðs við knattspyrnulið Þórs á Akureyri frá uppeldisfélagi sínu, Völsungi.

Frá þessu er greint á heimasíðu Þórs í dag en Rafnar Máni er tvítugur að aldri, fæddur árið 2002, og gerir samning til ársins 2025.

Rafnar er fjölhæfur leikmaður sem skoraði 4 mörk í 19 leikjum fyrir Völsung í 2.deildinni á síðasta tímabili. Þrátt fyrir ungan aldur býr Rafnar yfir töluverðri meistaraflokksreynslu en hann hefur leikið 100 leiki fyrir meistaraflokk Völsungs.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744